ert ekki ber???

19.03.2006 17:22:44 / elva

HÆTT

ÉG ER HÆTT MEÐ ÞESSA SÍÐU.... EN ER SAMT BÚIN AÐ GERA NÝJA OG SLÓÐIN ER www.123.is/djinn komið og kíkið á afraksturinn hjá mér...:) hehe... hún er líka miklu flottari er eiginlega komin með leið á þessari... en ÞIÐ VERÐIÐ AÐ VERA DUGLEG AÐ KVITTA Á NÝJU SÍÐUNNI... er búin að vera í allan dag og nótt að gera hana heh.. oki í allan dag þá...

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 12:52:45 / elva

helvíta djöfula anskota

ARRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRgasta helvíti..... er ekki að nenna þessu öllu lengur sko!!!! Sko mig dreymdi svo yndislegan draum að það hálfa væri nó... hann var allveg gjörsamlega eins og að ég vildi hafa ALLT í dag vaaaaáááá þetta var sko rosalegt, og ég vildi að ég hefði ALDREI vaknað aftur, bara haldið áfram að dreyma þetta.... ohhhhh LANGAR svooooo mikið að ALLT verði gott aftur.... Þoli ekki þetta svarta ský sem fylgir mér útum ALLT greinilega... nei nie aldrei eins og Ég vil hafa það, heldur akkúrat andstæðan... helvítis helvíti.... æi best að segja eins og Jóna segir æi hvernig var það aftur búast við því besta og svo eitthvað versta.. hvað var það aftur hon???

lítið að segja Diddi farin, og mamma líka farin... búúúúú... *sakn sakn* ekki gaman.. vil helst hafa þau hjá mér.. allavega mömmu.. er svo mikil dekurrófa að ég á eftir að spila með foreldrana til að koma bara suður á bóginn... eða það er ekkert mál með múttu, en kannski aðeins erfiðara með kallinn...
ummmmm.. *hugs hugs* í gærkvöldi í mestum leiðindum dauðans, þá ákvað ég bara að taka mér göngutúr.. ákvað að leyfa brósa að vera á bílnum og ætlaði nú að hringja í hann og láta hann skutla mér... nei í staðinn ákvað ég að fara bara labbandi, enda frábært veður, þannig séð og tilvalið til að fara í göngu, en vá hvað ég ætla að fara að stunda þetta, að fara bara út að labba, það er allveg yndislegt að fá svona ferskt loft og hreyfingu..:) svo þegar ég kom heim skellti ég dvd í tækið og gjörsamlega gerði gríðalega HÖKKUN.... gat varla gengið inní herbergi.... æji er nú bara nyvöknuð og ætla að skella mér í sturtu og sjæna mig til og skreppa í kringuluna eða eitthvað... gera eins og strákarnir, nema aðeins öfugt setjast á bekk og skoða strákana..:) kannksi ég fari bara og fjárfesti mér í einhverju skemmtilegu... verst að það eru allir að fara í fermingu í dag... nema kannski Berglind hummmm, kannksi í rífi hann b ara upp með mér í einhverja gleði svona á sunnudegi... sjáum til...
Ég segji svo bara ENN og aftur EKKI vera dónaleg... en mæðgur voru það sko ekki í gær, fékk 2 komment og það var frá þeim hugljúfu mæðgum og frænku mínum..
En Heiða frænka mín á afmæli í dag og óska ég henni til hamingju með það... 17 ára skvísan:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 21:38:30 / elva

æiiiiiiiiiiiiiiiiii

OOOOHHHHHHHHHHHHHH MÉR LEIÐIST SVOOOOOOOOOOO MIKIÐ!!!! BÚHÚÚÚÚÚÚÚÚÚ boring!!!!
búin að þrífa allt meira að segja sjálfa mig... og er allveg til í að gera eitthvað slemmtó sko... en ætli það endi ekki með því að ég arki niðrí grjóna og aftur í náttfötin og tendri á hverju EINASTA kerti í íbúðinni og verði þess vegna allsber bara uppí sófa og horfi á tvið.... vil að einhver komi og strjúki mér og gefi mér risa faðm.. arggggggg.... þetta kalla ég LEIMAÐ HELVÍTI..... en ég get víst ekki fengið allt sem ég vil... og það eru einhverjir kalla anskotar sem eru btw ógeð að garga af svölunum fyrir ofan eða einhversstaðar til hliðar BLINDFULLIR.... djöfuls ves!!! Jæja ætla að reyna að skoða einhverjar síður og drepast úr leiðó fyrst að enginn vill LEIKA við mig *skæl skæl skæl skæl* og það er farið að leka tár......   kannksi ég sitji bara hérna ALEIN heima og gjörsamlega ÞAMBI vínið mitt síðan þarsíðustu helgi og grenja sorgum mínum og drepist svo í baðkarinu, á sko FULLT af opal skoti...   og dónarnir ykkar KVITTIÐI..........

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 18:38:10 / elva

rugl bul og vitleysa...

Já já, ekki búin að gera rassgat... og það er með ólíkindum hvað mér leiðist, vaknaði nú klukkan 8 í morgun og lá uppí rúmi til að verða 9, þá skutlaði ég lille store bro í skvass... dont ask way.. en eitthvað með skólanum, síðan kom ég heim til að verða 10 og fór þá að vinna aðeins, gerði nú Ingu Dóru ræstingarstjóranum mínum greyða og stökk í sævar karl fyrir hana, en þar var nú maður sem að vinnur þar eða er eitthvað yfir, já hann var ekkert á því að láta mig skúra sko... nei nei hann vildi nú endilega fara að klæða mig upp eitthvað og svona.. já nei ég vildi það nú einna helst ekki... held að gamla hafi litist svona agalega vel á mig barasta...:) já já það er svona litlu börnin og gömlu kallarnir heheheh... held sko að Halldór Ingi hafi gjörsamlega fallið fyrir mér þegar hann var 6 ára og hann er sko ENN að drepast úr ást af mér og hann er hvað 12 ára að verða..... úfff hann fer bara að koma á aldurinn heheh... nehhh ætli það, já það er alltaf jafn gaman að Dóra mínum, allveg þegar maður hringir bjöllunni hjá Önnu Dögg þá er hann kominn niður til að kyssa mann og knúsa, og segjast elska mann og ég sé sko fallegasta stelpan í öllum heiminum..:P maður bara hálf roðnar af stráknum:) heh....

Jæja en í gærkvöldi þá gafst ég upp og lánaði bróðir bílinn og hann er sko enn með hann... en ég varð að leyfa honum aðeins að fá hann greyið, ég fór nú með honum einn hring í gær til að tjékka á hvort hann væri allveg traustsins verður.. já já hann er svona helvíti magnaður drengurinn:)

Ég og Erna fórum á grillhúsið og fengum okkur að borða, síðan kom Diddi og náði í okkur og við fórum heim og uppí rúm... og ég er búin að vera nánast sofandi síðan nema fór í vinnu og var komin heim klukkan 11..

Síðan er Anna að fara að passa og ég verð ALEIN heima, kannski maður fari bara og ÞRÍFI allt og haldi bara partý..:) langar giðveikt til að djamma, en ég ætla ekki að gera það, meika ekki meira í bjeli... en allveg eins og í gær tilgangslaus færsla..... en þegar ég er að spurja hver ert þú??? þá á sko að svara.....!!!! ekki vera að hnýsast í MÍN einkamál og ekki kvitta fyrir heimsókninni.. þetta er jafn dónalegt eins og að koma í kaffiboð og ekki þakka fyrir sig!!!! þannig að ég ætla að tjekka aftur.. og btw ég setti inn hérna í aðalvalmynd 37 vitlausar aðferðir hjá karlmönnum í kynlífi 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 18:58:58 / elva

nei nei nei nei

NEI HAFIÐI NÚ MÁNUDAGINN!!!!! Sko ég var að ná í bróðir minn, hann var að koma í heimsókn yfir helgina og er eitthvað með skólanum, en verður nottla að vera hjá elsku systir sinni;) sem hann elskar svo mikið, enda geri maður víst allt fyrir þetta kjánaprik heheheheheh, en ætla ekkert að koma með neitt komment um það hérna, þar sem að manni er bara strítt huffff puffff, en gaman að sjá stóra kvikindið... asnalegt, ég er 6 árum eldri og hann er 6 METRUM stærri... djöfuls djöfull... æi ég get nú samt lamið hann ennþá lalalalalalal... hey blogg númer 2 í dag.. en erum að fara út að borða ég og Erna hann vill ekki koma með, því ég held að hann haldi að hann fái bílinn minn lánaðan hahahahahahahahahahahaha ég hlæ nú bara að því.. OJJJJJJJ hann er ömurlegur sko situr hérna fyrir framan mig og er að smeðja sig þvílíkt við mig um að fá bílinn, og ég er allveg að guggna, það er samt fínt ef hann klessir hann... þá kannksi fæ ég bara nýjan bíl.. langar SVOOOOOOO mikið í nýjan bíl.

En hey ég er búin að taka ákvörðun um að vera edrú aftur þessa helgina:) er sooo dugleg, mamma var nú samt eitthvað að  segja mér að koma í Keflavík á yello á morgun, en veistu ég held ekki... samt aldrei að vita nema við mæðgur förum bara á djammið saman á fæðingarstaðnum mínum:)
vó enginn tilgangur í að eyða tíma í að lesa þetta sko... en HVER  ert ÞÚ???

» 10 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 10:34:34 / elva

vel lyktandi...

Vóhó, í morgun mætti ég manni í vinnunni og ummm lyktin sem fylgdi fjandanum... össss þetta var rosalegt sko.. og ekki var útlitið verra úfff, held bara að ég hafi blotnað um mig miðja hahahah:haha: án gríns þá var ég mikið að spá í að stökkva á hann og bara... já barasta ummm humm... LYKTA meira *hóst* tralalalalalaaaa... þetta er nottla stórhættulegt að lenda í svona á morgnanna:) úfff sko, skil ekki afhverju ég spurði ekki hvaða ilmur þetta hafi verið, ég hefði arkað BEINUSTU leið og keypt mér þetta.. og sprautað í koddann minn allveg nokkrum sinnum, þá hefðu þið hvorki heyrt né séð af mér meira!!!! HEPPINN!!
He he, já í gær vorum við Erna eitthvað að flakka um bara, skutluðum Jóni inní Grindavík, því hann kom í nokkra tíma og þurfti svo að fara aftur, og æhhh hvað hann er mikið krútt alltaf... svo hughreystandi:) Sko ég var eitthvað að bölva yfir augnabrúnunum á mér því þær voru allveg SKULL sko.. ojjj bara argasti viðbjóður og gjörsamlega ÖSKRUÐU á mér, löngu eftir heyrist í litla skrípalinginum mínum, þó svo að þú sért ekki sátt við augabrúnirnar á þér þá finnst mér þú samt ótrúlega sæt;) æji dúlli, ég myndi nú meina að þetta hafi verið sagt til að komast í brókina hjá mér, en hann var á leiðinni útá sjó... kannski hann vonist eftir móttöku þegar hann kemur í land... heheheheheh nei djók!!! maður má allveg grínast annarsslagið... er líka bara að reyna að finna eitthvað til að skrifa hérna, er núna tölvusjúk;) like allways...
Hehehehehe já vá á heimleið kom lag með Gavin Degraw, eða wat ever... þanna chariot og ég og Erna sprungum gjörsamlega úr hlátri... hahahaha því þetta minnir okkur á litla leimið, þegar hann gerði svoltið "ósiðlegt" á Reykjnesbrautinni og vá hvað það var fyndið hahahaha æi langt síðan ég hef hlegið svona mikið barasta:) gott og gaman með það... en jæja hef EKKERT annað að bulla hérna, en langar að koma með eitt hérna, sem að mér finnst;) og svona pælingsdæmi allveg sko!! TIL YKKAR MÍNIR VENNER..... lov ju


Vinarkveðja..    

Þú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleið þinni,

en það eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í þínu hjarta.
Til að geta stjórnað sjálfum þér, notaðu hugvitið;
Til að stjórna öðrum, notaðu hjartað.

Gáfaðar persónur tala um hugmyndir.
Minna gáfaðar persónur tala um hvað gerðist.
Illa innrættar persónur tala illa um aðra.

Sá sem tapar peningum missir mikið.
Sá sem missir vin tapar miklu meira.
En sá sem missir trúna á lífið sjálf, missir allt.

Við erum vinir þú og ég, ef þú tekur vin þinn með erum við þrjú.
Við getum stofnað lítinn vinahóp.
Það er jú ekkert upphaf og enginn endir,
njótum lífsins og verum góð hvort við annað því lífið er svo stutt
þrátt fyrir allt og þess vegna ætti ekki að vera tími til að tala illaum
aðra.

Öll dýrin í skóginum vilja vera vinir og við mannverurnar
í okkar frumskógi freistinga lífsins viljum líka vera Vinir og góð hvort við
annað.

Dagurinn í gær er liðinn.
Morgundagurinn er óvænt ánægja.
Dagurinn í dag er gjöf.

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 15:02:41 / elva

já núna er ég allveg ORÐLAUS

Nei hafiði nú mánudaginn ég er allveg þrælviss um það að það sem að er með tittling undir sér.. semsagt karlmenn hljóti bara að vera eitthvað hræddir við mig, sko í gær var ég að þrífa bíliinn minn og þá renndi bíll uppað mér með 3 strákum í og þeir allveg rosalega góðir með sig, blessuð og ég snéri mér við og þá urðu þeir allveg eins og hálfvitar og í panikkiskasti, vó hó sko, ég bara já blessaðir.. þá heyrist í bílstjóranum og benti á sá sem sat frammí og sagði hann segist þekkja þig, hann nei hann, nei hann, nei hann, nei hann... eftir langa stund sagðu ég bara jæja hver ykkar segjist þekkja mig..?? þeir bara allveg eins og bjánar og þessi sem var afturí búin að grafa sig oní úlpuna eins og kjáni.. og þeir ennþá eitthvað að babbla þarna á milli sín og ég bara nehhh skaust uppí bíl og brummaði í burtu... þeir hafa kannksi farið í veðmál hver þeirra myndi komast uppá stelpuna á bílaplaninu nei hver veit... eða þá að ég er greinlilega svona sæt að þeir hafa bara orðið hræddir.

Jæja ekki nó með það þá fékk ég hringingu um daginn frá strák sem við skulum bara kalla ljósið og hann ætlaði sér að fá einhver föt, sem er bara ekkert í boði að hann fái og ég sagði honum bara að manneskjan sem á þau gæti bara komið og náð í þau SJÁLF og borgað sínar skuldir... þar sem að hún gjörsamlega skeit á mig!! Hann bara vaaaáááá Elva þú ert rosaleg, vaaááá þú ert yndisleg og æðisleg stelpa, vissi ekki að þú værir svona frábær!! kommon sko.. Nei nei síðan var hann búin að frétta að Erna væri með þetta drasl sem er reyndar ekki allveg rétt og hringir í hana með einhvern kjaft.. afhverju ætli hann hafi ekki rifið kjaft við mig??? já það er spurning, hverjum dettur í hug að rífa kjaft við Ernu en EKKI mig??? Díjjjj

Sko og ég er ekki ennþá búin, nema hvað um daginn þá var ég víst eitthvað að eipa og þvílíkt að bulla einn dreng gjörsamlega til á fillerýi og hef ekki einu sini hugmynd um hvað og er búin að vera í þvílíku þunglyndi út af því.. og núna er ég farin að verða frekar hrædd um að hann þori ekki heldur að tala við mig, kannksi vill hann það ekki, ég veit ekki hef allavegana ekki fengið neitt svar um eitt eða neitt, en því ætli hann segji það þá ekki bara, í stað þess að haga sér eins og barn og segja ekki neitt,  sko er allveg að missa mig yfir þessu sko!! þykir samt óendalega vænt um þessa manneskju, en er ekki allveg að skilja sko.. Halló þessi gaur á BARN og hélt líka að þroskinn væri aðeins meiri en þetta, þetta mál er allveg að gera út af við mig.., og ég er búin að reyna að koma mjög vel fram við þennan mann, og reyna að vera góð við hann og ég veit ekki hvað og hvað, og ég held líka að hann ætti að vita manna best að maður getur tekið FEILspor á ævinni, ætli hann hafi ekki gert það þónokkrum sinnum... ég er búin að reyna að biðjast afsökunar og hann getur ekki einu sinni  talað við mann... æi vona samt að hann lesi þetta ekki og móðgist meira við mig eða hvað hann er nú, kannksi les hann þetta og kannksi ekki, er sjálfsagt bara eins og sumir sem ég þekki huhumm!!!! Já svona er þetta, en má ég spurja er ég svona agalega GRIMM í alvörunni?? hélt að þetta væri djók sko, það eru nokkrir búnir að segja við mig að ég sé svo grimm... en er samt ekki alveg að fatta hvernig.. er það útlitið, eða er ég svona, vá einhver að útskýra TAKK!!! Er nebbla ekki allveg að fatta þetta hérna... og eru allir strákar svona, má ekkert segja, og þó maður sé liggur við búin að leggjast á fjórar og biðjast afsökunar og maður fær bara engin svör....

kveðja Elva útúrgrimma og hneikslaða.... eða hvað ég er nú...


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 19:16:51 / elva

herðu herðu...

Sko ég var eitthvað að bardúsa undir rúmi og þar fann ég KARLMANNSBRÓK!!!!! ég var nú að spá í að þefa af þeim og athuga hvort ég kannaðist við lyktina... hahahahahahahahahahahah ooojjjjjjjjjjjjj nei ógeð... Henti henni beint í þvott..:) en alltaf gaman að finna svona lagað á stelpuheimili..:P
En ég er nánast búin að vera sofandi í allan dag, er hálf veik, og er að drepast í hausinn, fæ sko aldrei höfuðverk, þannig að ég ætla að fara í bað og skella bláu grímunni á hausinn á mér og halda áfram að liggja.., líður svoooooooo ILLA *snökt, snökt* vantar einhvern til að vera góður við mig. Erna að vinna og Anna að hugsa um Júlíu, því hún er svo agalega pirruð... Æi Erna nennir heldur aldrei að vera góð við mig, er bara alltaf að sparka í mig og berja, (sérstaklega í svefni) hún er roaleg... jæja best að reyna að huga að hausnum á mér, kannksi er þetta útaf því að hann er útfullur af hugsunum!! Verð að reyna að henda einhverju út bara, en það reynist eitthvað erfitt:frown:

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 11:02:54 / elva

leiðilegt!!

Er í alvöru HÆGT að sakna einnar manneskju svona mikið??? vá ég vissi ekki að þetta væri hægt!!!!! shit sko, ég er alltaf að komast betur og betur hvernig lífið er... og það er HELL!!!! ekkert annað... dí mar þetta er LEIMAÐ helvíti sko.. það er alltaf eitt dæmi að stökkva uppí hausinn á mér og ég næ því ekki út sko... langar samt ekki að hugsa svona um það... almáttugur, hvað er hægt að gera... þetta yfir tekur allar hugsanir mínar sko, án gríns rosalegt maður!!! en ætla að reyna að leggja mig, sef svo illa nú orðið...

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 17:52:02 / elva

.... er ALDREI neinn sammála mér???


Í gær tókum við Erna sunnudagsrúntinn inní Hveragerði og kíktum á Sigurdís, æi hvað var nú gaman að sjá þessa elsku, hún er alltaf jafn mikil dúlla, og alltaf jafn gaman að hitta hana, og við ákváðum að ferðum okkar muni núna fjölga yfir fjallið til að hitta hana og kíkja í bolla og gott spjall:) það er nú líka alltaf jafn gaman að kíkja rúntinn í Hveragerði... já það var nú alltaf gaman þegar maður bjó þar...
Annars er mjög lítið að frétta, nema það að það er eitthvað djöfulsins vesen búið að vera að netinu hénna í dag og ég er búin að vera að fara yfirum.. og verst af öllu er að ég er búin að "reita" tölvukallinn minn til reiði að ég held, allavegana sjálfsagt eitthvað í þeirri líkingu... tja allavegana er fátt um svör á þeim bæ!!!!!! Þannig að ekki get ég kvatrað yfir þessu í honum... ohhhhh það væri nú samt allveg típíst að hann hefur bara einhvernvegin komist inní draslið hérna hjá mér, og er að fíbla mig eitthvað..... eða kannski er það ekki hægt ég veit það ekki, er ekki allgjört tölvunörd sko... *hóst* En samt sem áður, hverjir eru að gera spurningarnar um mig og GETA EKKI skrifað nafnið sitt, guð minn góður sko.. hallæri dauðans... og barnalegt.... hlýtur að vera hvaða hvaða..... allveg ótrúlegt hehe einhver leyndur eða eitthvað... jafn vel einhver sem er að fylgjast með mér og ég má ekki vita.... gætu meira að segja komið 2 til greina og það voru akkúrat 2 sem að gerðu þetta... OOJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ
LEIM !!!! segji ekki annað en það... jæja nenni ekki meira, en nú má fólk sko allveg fara að kvitta... hlýtur að vera suddalið sem er að skoða þessa síðu, það þorir enginn að kvitta allavegana...!! kjánaprik!!
En hey hva er etta, er enginn sammála mér í því að sá karlmaður sem skýtur mig beint í hjartastað   verði allveg ótrúlega HEPPINN????? hehehehe

» 12 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 11:58:46 / elva

ég er sko kvendi...


Hey var að gera nýjar svona spurningar... er í aðalvalmynd **svaraðu þessu** og allir að gera..:)

æi hafði ekkert annað að segja þarna að ofan;)

En ég víst ennþá að bíða eftir "kallinum" sem rauða ljósið LOFAÐI mér í gær!!! trúi ekki að það ætli líka að svíkja mig, djöfuls djöfull, allir að fara á bak við mann bara pöffff, já það virðist vera að það séu mikið af aulum í kringum mann, ég er sko allveg búin að komast að því, oki ég veit að það er enginn fullkominn, en HALLÓ, ég meina það sko, ég held að ég sækist í allt það sem eru stimplaðir "aumingjar" allveg brókað mál...
En svosem lítið að frétta, búni að vera edrú ALLA helgina og finnst það ekkert smá fínt, er að spá í að halda því bara áfram, þá geri ég allavegana ENGA skandala!! var að pæla í að kannksi að drekka bara rauðvín og sonna með matnum, og kannski fara bara á djammið þegar að það er eitthvað rótækt í gangi, enda líður manni bara ágætlega vel eftir þessa helgi, búin að hafa það mjög fínt!:)
En ég og Erna kíktum á Elsu og þar var Bjössi, gamall góður vinur minn úr Hveragerði og hef ekki hitt hann í ár og daga, gaman að sjá kallinn, alltaf jafn hress og frábær drengur:) fór barasta snemma heim og lagðist uppí rúm og horfði á tv.. fannst það yndislegt, en það hefði nú verið allveg perfect ef ég hefði einhver til að hjúfra mér upp að ahhhhh da eso godt...:) núna er ég orðin svo vön að einhver sofi uppí hjá mér en í nótt var ég bara ALEIN og fannst það geðveikt óþæilegt... búhúúúúú jæja maður verður víst að sætta sig við það, þó svo að Erna sé búin að lúlla hjá mér núna undanfarið, þá knúsa ég hann alltaf á nóttinni, og vitiði hvað ég fæ til baka, nei, nei spark og kílingar og lappirnar á henni stökkva uppá mig og ég veit ekki hvað og hvað, svo þegar síminn hennar byrjar á undan mínum þá er ég alltaf rosa góð við hana og segji með blíðum tón, þetta er síminn þinn elskan!! og hún bara horfir á mann með fyrirlitningu, þegar að minn byrjar á undan.... herðu herðu herðu... enda er ég búin að fá lánaða dýnu og er að hugsa um að láta hana sofa bara í stofunni...:) hehe
Jamm í gær kíktum við í ikea og fórum svo í heimsókn til mömmu, og hún gaf mér þessa uppþvottarhanska:) gekkt flottir

jú jú sannkölluð bitch en ég er nottla svo mikil húsmóðir í mér og verð ég öruggleg flott með þessa á lofti, helst allsnakin með þá... hehe já ég leyni sko þvílíkt á mér í þeim málum, enda þegar ég ætla að eignast börn og þennan leyndardómsfulla mann, þá verður sko alltaf eldað, þrifið, þvegið, bakað og allur pakkinn og það á ALLT að vera í mínum verkahring, mér finnst þetta svo gaman:) hann fær bara að sitja við skjáinn og drekka sinn bjór....:) já heppinn maður sem að fær mig :P hahahahah:haha: jæja er að bíða eftir Ernu núna og við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt, til að enda helgina, þannig að ég kveð í bili!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 01:18:01 / elva

hvar er deitið mitt???

sko í gær lenti ég alltaf á grænu ljósi, semsagt EKKERT deit og karlmaður þá......
EN áðan þegar ég var að koma heim lenti ég ALLTAF á RAUÐU, þannig að ég á fullkomlega skilið að fá karlamann....!!!! og HVAR ERTU?????? já ég   bíð og bíð og bíð og bíð og bíð og bíð.... ekki nó með það ég er ennþá að fokkings bíða... verð bara uppí rúmi hahah, en vó hvar ertu???? 

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 14:00:24 / elva

photos og letilíf

já það er sko satt, gerði ekki fokkingsrassgat í gær, nema lá í leti horfði á sjónvarpið og lá í tölvunni, var meira að segja að yfirfara myndirnar og fann myndir síðan um jólin og skellti þeim inn, þetta er nú mest samt af mér og bróðir mínum og litlu sætu frændsystkinum mínum, Stefán Atla, Unnari og Söndru, held samt að það séu hellingur ennþá eftir, kíki kannski yfir það í kvöld, ætlum samt að reyna að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld, Erna var og ER leiðileg, hún sofnaði um klukkan 9 í gærkvöld, og ég var vakandi í alla nótt, og núna er hún útúr sofin og ekkert smá leiðileg og er eitthvað að fara yfir draslið sitt hérna og er eitthvað að ÖSKRA á mig og segja mér að drulla mér framúr og HÆTTA í tölvunni, en ég er svo að reyna að pirra hana núna að það hálfa væri nó, ætla meira að segja að setja hingað inn smá úttekt af myndunum síðan í gær, bara til að vera lengur í tölvunni hehehe....
En kannksi ég fari svo og aðstoði hana, svo í sturtu og reyni að gera mig eitthvað augnayndi, svo kannksi einhverjum finnist ég vera sæt:) síðan bara tökum við kannksi hring í kringlunni og kíkjum í einn bolla eða svo og síðan langar mér rosa mikið að fara á skauta!!! ætla að reyna að spila með Ernu með mér, það verður örugglega geðveikt gaman, fara á svellið á fljúga á hausinn og merja á sér líkamann... Ég er síðan að fara að byrja í 3 mánaða líkamsræktartörn og fá útrásina þar!! eftir helgina, djöfull held ég að ég verði fitt eftir það:) þarf nebbla á svo mikilli útrás að halda, að það hálfa væri nó!:^) þá held ég að ég eigi eftir að verða fremur ánægð og hætta að fá útrás á einhverjum sem á það kannski ekkert skilið, en kannski eiga einhverjir skilið að fá á baukinn hjá mér...... æi ohhhhhhhh hvað ég vildi að ég væri 16 ára, þá var lífið sko gott, eingar áhyggjur af neinu, alltaf líf og fjör, ohhhh ég vildi að ég gæti spólað til baka og EKKI gert svona mikið sem að ég sé svo eftir að hafa virkilega GERT, já það væri sko margt, t.d myndi ég ALDREI leyfa neinum að "plata" mig svona feitt eins og mér finnst að 2 manneskjur hafa fengið að gera mér, ojjj bara það er ógeðslegt sko!!! Djöfuls djöfull, en þessar 2 persónur fá þetta bara allt til baka seinna meir, því get ég lofað... DJÖFULSINS PLAYERAR!!!!!
jæja best að skella inn smá útbrot af myndunum og ég vil fá KVITT núna, helv....
Fallegustu systkinin;)

ég og unnar
ég og sandra



krúttlegust í heimi


Stefán Atli

hann er svo mikil dúlla


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 13:16:05 / elva

bojbojboj og myndbrotið..

Nei sko hvað haldiði að nýji siminn minn hafi sagt mér í morgun.... já það er spurning, en mér var litið á hann og þar stóð bara framan á skjánum: EKKERT STEFNUMÓT Í DAG... ummm thank u for the information..!! og ekki nó með það þá var ég á heimleið neðan úr bæ btw og það kom EKKI eitt rautt ljós á leiðinni, og ég er svo hjátrúafull, þannig að engar áhyggjur að Elva hustli í dag..
En jæja í gær ákvað ég að rífa mig uppúr þessu þunglyndi sem er búið að vera að herja á mig undanfarna vikuna, meira að segja eyddi bara út seinustu færlsu, og takk fyrir alla hugulsemina, ég veit að það er til fólk sem þykir vænt um mig og líka örugglega allveg hellingur sem hatar mig, en bara fokk them, nehhh það er þá bara þeirra mál ekki satt???


En best að koma með smá frá gærdeginum, ég og Erna vorum eitthvað að rúnta niður laugarveginn og skyndilega datt mér í hug að við myndum fara í bónus að versla, og vá hvað það var troðið í kerruna, keyptum líka fullt full af nammi og ég sagði við Ernu að passa það myndi ekki allt lenda neðst í pokunum, og síðan gerðum við sko laglega HÖKKUN össsss enda fengum við að finna fyrir því vorum allveg að DREPAST í mallakút..

En um kvöldið fórum við í keilu með Berglindi, Kristínu, Svenna og Kalla frá Ak.. það var ekkert smá gaman og ég kann nú ekki mikið í þessum leik sko, enda hélt ég á kúlunni eins og smákrakki með báðum höndum og Svenna fannst þetta sko snilldar aðferð hjá mér:) og vá hvað hann var FULLUR hahahaha, var allveg agalegur að taka takta þarna út á gólfi og síðan fór hann barasta á eftir kúlunni og gjörsamlega FLAUG á hausinn.. shit hvað það var hlegið og klappað fyrir kauða hahahaha.
En eftir þetta var ákveðið að kíkja á Hverfis og vorum við Erna stopp við hliðina á þeim á rauðu ljósi og Svenno kominn hálfur útum bílinn og þá var Erna búin að þenja bílinn og bjóða Berglindi í spyrnu og skyndilega rauk Berglind af stað á RAUÐU ljósi og skildi næstum því Svenna eftir  í malbikinu hahahahaha, það var ekkert smá fyndið.. langt síðan ég hef hlegið svona agalega mikið.. tókum síðan einn rúnt á glaumbar og ég og Erna fórum heim fljótlega eftir það, og vorum að syngja lag með skímó, eitthvað hugljúft sem ég man ekki hvað heitir og vorum sko að syngja fyrir hvora aðra BEINT frá hjartanu og alltí einu kemur svona austin mini og MÖKKAR framúr okkur nei nei þá voru við á 40 á miklubrautinni hehe, og Erna gaf nú í og var allveg að koma við hliðina á honum, þá alltí einu er hann kominn beint fyrir framan okkur, sko þegar að bílar skipta um akgrein, þá sér maður svona þegar að þeir beygja, pínu á ská, en NEI hann barasta fór allveg þráðbeint, þegar hann skipti um akgrein og við þurftum að STOPPA útí kanti til að hlæja...:D, síðan var bara sturtan og rúmið, veit ekki hvað ég geri af mér í dag, en við hjónin ætlum bara að vera rólegar um helgina og skemmta okkur án þess að fara á fillerý:) og kannksi kíkja í bíó og elda geggjaðan dinner, og sonna, rólegheit, bara rómó, æi það verður örugglega allveg yndislegt, vona að ég bæti mér upp ruglið seinustu helgi....:(

en herna kemur myndbrotin þau eru 2 en úr sömu mynd sko..
(þau eru 2 að tala saman í báðum brotunum)

nr1
Ætla þeir svo að lifa á því að þvo skyrturnar hver af öðrum
þetta eru þreyttir menn, þeim er nú gott af því að losa sig við útgerðina og fá einhverja aura
Skammsýnir aular!!

nr2
Djöfulsins fíla er hérna
what did u say?
þa' er slorlykt af þér..

jæja allir að taka þátt þarna leimin ykkar... æi ohh ég á bara eitt leim, oki þá þið öll sem eruð að lesa!!!!  

» 10 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 22:17:41 / elva

TILKYNNING!!!!!!!

úfff ég er svo afvelta núna að ég á með erfiðleikum að skrifa sko!! en núna er ég að gera aðra færsluna í dag, vegna þess að mig vantar sálufélagann minn!!!! jábbb hann er lost bara, hef ekki hugmynd um hann eða hvar hann er niðurkominn... veist þú nokkuð um hann????? endilega láttu mig vita, ég er allveg að tapa mér hérna sko!! og endilega fangaðu hann þá!! og skilaðu honum til mín;)
En lítið annað að frétta nema hvað ég og Erna erum búnar að gera ENDALAUSA hökkun í ALLAN fokking dag, og erum meira að segja búnar að ná að fara inní Keflavík og þar fórum við á traffic og hittum móður mína ástkæru, þar sem hún var UMKRINGD 1000 karlmönnum að horfa á fótboltaleik, já þetta er hún móðir mín, en hún var nú samt ekkert á því að leyfa okkur að fara sko, en við sluppum, beint í sjoppu og keyptum okkur harðfisk og vorum í kannksi sirka 3 mín að troða honum í spikið á okkur.. en er núna að fara í bað, þar sem að herbergið er eins og gullmoli núna allt hreynt og fínt og meira segja fataskápurinn var tekin í gegn!!!! en hey á morgun kem ég með þrautina agalegu.. árla morguns.. en ekki gleyma að láta mig vita ef þið hafið rekist á my soulmade????

abababbbbababa.. eitt enn hérna MÉR LANGAR ÓGEÐISLEGA MIKIÐ Á HRÓASKELDU.... VILL EINHVER KOMA MEÐ MÉR?? guns'n roses er sko að spila... vei vei vei vei vei vei gaman gaman EN EITT SKALTU VITA AÐ ÉG FER EKKI Í FLUGVÉL..... kannski einhver laumi bara dópi í glasið hjá mér hahahahahahah.... þá kannksi meika ég að fara í flugið!!!! nema að ef að einhver vill koma með mér og hefur mikinn áhuga á að skammast sín fyrir einhver, þá er það ekkert mál ....eða júhú fyrir mig reyndar... en kommon förum saman....:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10